24.01.2012 18:09
(-_-).."""Jæja""" það er komið Myndband frá mér í Janúar 2012. Já það er sama mynbandið og ég setti á Fésbók hjá mér já eða Facebook.com sem er á Myndbönd á forsíðuni hér. Fyrir þá sem ekki eru með fésbók eins og til dæmis Halla frá Bakka og svo margra annara....(-_-)
Þorbjörn Jóhannsson
Smá hugleiðing frá frænda mínu um skattkerfið okkar, algjörlega þess virði að lesa!!!
Tíu félagar hittast á hverjum degi eftir vinnu og fá sér bjór.
Reikningurinn er upp á 10 þúsund krónur. Þeir skipta reikningnum á milli
sín með sama hætti og þeir greiða skatta og styðjast þá við tekjutengt
skattkerfi. Því hærri tekjur því meira er greitt. Því lægri tekjur því
lægri er greiðslan og jafnvel er ekkert greitt.
Niðurstaðan:
Fyrstu fjórir félagarnir greiða ekkert.
Fimmti félaginn greiðir 100 krónur
Sjötti greiðir 300
Sjöundi greiðir 700
Áttundi greiðir 1.200
Níundi greiðir 1.800
Tíundi félaginn (sá ríkasti) greiðir 5.900
Þannig gengur þetta mánuðum saman og allir virðast ánægðir og sáttir við sinn hlut.
Bareigandinn hefur hins vegar áttað sig á því að þessir tíu frægnu
vinir eru hans bestu viðskiptavinir og því nauðsynlegt að gera vel við
þá. Dag einn tilkynnti hann félögunum að hann hefði ákveðið að veita
þeim 20% afslátt. Í stað þess að greiða 10 þúsund krónur myndi
reikningurinn hér eftir verða átta þúsund krónur.
Auðvitað fögnuðu
vinirnir og ákváðu að halda sig við regluna um að hlutur hvers og eins í
reikningnum yrði tekjutengdur. Eftir sem áður myndu fjórir tekjulægstu
vinirnir ekki greiða neitt. En hvernig hvernig er þá best að skipta tvö
þúsund króna afslættinum á milli sín?
Félagarnir áttuðu sig
strax á því að ef tvö þúsund krónum er skipt í í sex hluti koma 333,33
krónur í hlut hvers og eins. En það gengur auðvitað ekki að skipta
afslættinum á milli manna með þessum hætti enda yrði niðurstaðan sú að
sá fimmti og sá sjötti fengju í raun greitt fyrir að drekka bjórinn. Sá
fimmti fengi 233,3 krónur og sá sjötti um 33,3 krónur.
Bareigandinn kom með lausnina. Best sé að skipta afslættinum þannig að
þeir tekjulægstu fengju hlutfallslega mesta afsláttinn. Á þetta sættust
félagarnir og reikningurinn skiptist því þannig:
Fyrstu fjórir félagarnir greiða ekkert frekar en áður.
Fimmti félaginn greiðir ekkert (100% afsláttur)
Sjötti greiðir 200 krónur í stað 300 króna (33% afsláttur)
Sjöundi greiðir 500 krónur í stað 700 króna (28% afsláttur)
Áttundi greiðir 900 krónur en ekki 1.200 krónur (25% afsláttur)
Níundi félaginn greiðir 1.400 en ekki 1.800 (22% afsláttur)
Tíundi félaginn, sá ríkasti, greiðir 4.900 krónur í stað 5.900 króna (16% afsláttur)
Þannig eru allir félagarnir betur settir en áður og sá fimmti fær nú að drekka sinn bjór án þess að greiða nokkuð.
Þegar félagarnir eru að kveðja hvern annan renna hins vegar tvær grímur á menn.
"Ég fékk aðeins 100 krónur í minn hlut af tvö þúsund króna afslætti,"
hrópar sjötti félaginn. "Hann fékk hins vegar eitt þúsund krónur - tíu
sinum meira en ég," bætir hann við og bendir á þann tíunda og þann
ríkasta.
"Þetta er rétt," hrópar sá fimmti sem nú fékk að drekka frítt. "Ég sparaði einnig aðeins hundrað kall. Þetta er ósanngjarnt."
"Nákvæmlega," bætti sjöundi maðurinn. "Þeir ríku fá alltaf meira í sinn hlut."
"Bíðið nú aðeins," hrópaði einn þeirra fjögurra sem alltaf hafa drukkið
frítt. "Við fengum ekkert í okkar hlut. Þetta er enn eitt dæmið um
óréttlæti. Líkt og í skattkerfinu eru þeir tekjulægstu arðrændir."
Þannig æsist leikurinn og endar með því að tíundi félaginn er
umkringdur af hinum. Félagarnir níu ganga síðan í skrokk á hinum ríkja
sem fékk eitt þúsund króna afslátt.
Daginn eftir er mætt á barinn en
auðmaðurinn lætur ekki sjá sig. Níumenningarnir drekka og spjalla. En
síðan kemur að uppgjöri. Þá rennur upp fyrir þeim að þeir hafa ekki
lengur efni á því greiða fyrir drykkjuna. Þeir eiga ekki einu sinni
fyrir helming upphæðarinnar.
Þannig virkar tekjutengt skattkerfi.
Tíundi félaginn situr nú á öðrum bar og drekkur sinn bjór í næði. Hann
greiðir nú aðeins fyrir það sem hann drekkur og tekur ekki þátt í að
greiða fyrir drykkju annarra og sparar verulega peninga. Gamlir félagar
hans hafa hins vegar ekki lengur efni á hittast á hverjum degi. Gamli
barinn er nú í niðurníðslu enda hefur stórkostlega dregið úr
viðskiptunum.
Dr. David R. Kamerschen, prófessor í hagfræði við
Háskólann í Georgíu, mun hafa sett saman þessa dæmisögu sem hefur verið
notuð til að skýra með einföldum hætti kosti og galla skattkerfisins.
Sagan er verið lítillega staðfærð hér